Viðskipti innlent

Lára Björg hætt í forsætisráðuneytinu

Jakob Bjarnar skrifar
Lára Björg tilkynnti nú fyrir skömmu að hún hafi nú látið af störfum sem upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar. Ástæðan sem Lára tiltekur er sú að hún verði að hlusta á líkama sinn.
Lára Björg tilkynnti nú fyrir skömmu að hún hafi nú látið af störfum sem upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar. Ástæðan sem Lára tiltekur er sú að hún verði að hlusta á líkama sinn.

Lára Björg Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar en hún hefur starfað í forsætisráðuneytinu, hverfur frá störfum. Hún tilkynnti þetta á Facebooksíðu sinni nú fyrir skömmu.

„Ég hef verið heppin að fá að vinna við það sem elska síðustu tvö árin. Mér þykir ótrúlega vænt um þennan tíma sem er því miður á enda. Eftir of mikið álag, mögulega árum saman, frá því Óli minn var sem veikastur fyrstu æviárin hans og síðan skyndilegt fráfall elsku mömmu í fyrra eftir stutt veikindi, allt í fullri vinnu, þarf ég að hlusta á líkamann, fylgja ráðum lækna, minnka álag tímabundið, setja eigin heilsu í forgang og safna kröftum og orku,“ segir Lára Björg.

Hún segist kveðja forsætisráðuneytið og sitt yndislega samstarfsfólk þar sem og í öðrum ráðuneytum með söknuði og hlýju.

„Og ekki má gleyma fjölmiðlunum góðu fyrir ánægjuleg samskipti, fjölmarga kaffibolla og skemmtilegar stundir á allskonar blaðamannafundum við allskonar aðstæður -og á ýmsum tímum sólarhrings! Takk. Og að lokum: Takk elsku Katrín, Bergþóra og Lísa fyrir allt. YNWA dömur mínar. Muna það.“

Ekki liggur fyrir hver mun taka við af Láru Björg en þessi tíðindi voru bara að berast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×